| Hæ ég er mætt aftur. Dísa mín, auðvitað veist þú ekkert um Rockstar Supernova og er það alltof langt mál til að fara með það hér. En eitt get ég sagt þér. Að Magni er komin heim, á eftir að syngja og túra með þessu frábæra húsbandi í janúar n.k. og að Lucas hann vann, eins og ég hélt, og núna eru hann og Tommy Lee ( fyrrverandi Pamelu Andersson maður og barnsfaðir ) örugglega í stanslausu geimi. Nú geta íslendinar farið að sofa á venjulegum tíma á þriðjudags og miðvikudagskvöldum og þá vonandi minnka baugar okkar hér á fróni. Jájá við erum enn að flytja út og nú er alveg að koma að þessu. Það er ótrúlega mikið af dóti farið í geymslu og merkilegt nokk hvað er nú samt rosalega mikið eftir. Það er svo skrýtið að mér finnst eins og allt hafi stöðvast i kringum mig. Maður fer í vinnuna og síðan heim ( að pakka ) og stundum hef ég mig grunaða að vera meira að segja farin að nota það sem afsökun fyrir að gera ekki eitthvað annað. Það er svo skrýtið að maður verður minna upplagður fyrir að fara eitthvað þegar allt er í drasli og út um allt heima hjá manni. Svona eins og lífið stoppi pínu, engar framfarir. Svona getur maðurinn verið skrýtinn. Við hjónaleysin skelltum okkur á Nick Cave tónleika ,í laugardagshöll, síðasta laugardag og voru þeir alveg yndislegir. Ég verð að viðurkenna það að ég hef ekki mikið hlustað á kauða og það kom mér nokk vel á óvart hvað hann var pönkaður. Einhverra hluta vegna hafði ég ekki tekið vel eftir því áður. Spurning hvað ég hlustaði vel. En þetta var algjör snilld. En til að merkja hvað við erum orðin hræðilega gömul þá fórum við beint heim, upp í sófa að kúra og sofnuðum þar mjög fljótlega. VIÐ ERUM ALVEG HREINT SKELFILEG. Þangað til næst, knúúúúúúúúúúúúúúúúúúússssss |

2 Comments:
At 5:00 PM,
Tóta said…
Get ekki beðið eftir að fá þig sem nágranna er búinn að taka fyrstu rauðvínsflöskuna til :)
At 9:17 PM,
alex said…
Ohhh skil svo vel að heimurinn í kringum mann stoppi þegar allt er í óreglu. Mitt líf er í SVOOOOO mikilli óreglu núna. Búa til ferilskrá, leita að vinnu sem er ekki til, taka til í skápum heima eftir að maðurinn minn er búinn að vera einn heima í næstum ár, úffff, og allt það. Ég veit ekki einu sinni hvaða dagur er.
Post a Comment
<< Home