Sigga Sif

Monday, August 14, 2006

Jæja nú er ég komin aftur eftir sumarfrí, svolítið síðan, þannig að nú ætla ég að fara að skrifa aftur. Það er sko mikið búið að vera að gera hjá henni Siggu í sumar. Ég byrjaði sumarfríið á því að fara í 4ra daga göngu " Á Víkurslóðir " sem ganga frá Borgarfirði eystri( s.s. Bakkagerði ) og yfir í Loðmundafjörð. Þeir sem að þekkja mig vita að ég er nú ekkert sérstaklega mikið fyrir hreyfingu svona dagsdaglega þannig að þetta var stórt stökk fyrir mig. Ég, Elfa systir og Anna systir gengum fyrsta daginn og svo bættist Gunna systir í hópinn. Þetta var alveg yndisleg ferð. Við vorum símasambandslausar allan tímann sem gerði þetta enn yndislegra. Það var ómetanlegt að tala saman um heima og geima án þess að verða fyrir áreiti af umhverfinu. Þarna skildi maður hvað venjulega er mikið í gangi kringum mann sem maður er farin að taka sem eðlilegum hlut. Við hlógum allan tímann, af hverju sem var. Reyndar töluðum við svolítið um hvaða húmor við systur hefðum og urðum sammála um að hann væri svolítið kaldur og út í það að vera neikvæður og ákváðum að breyta því. ( eða sko hinar ) Þetta þýddi að í hvert sinn sem einhver sagði eitthvað sem var ætlað að vera fyndið þá fóru hinar að skilgreina húmorinn. Ummmmmmm..........var þetta of kaldur húmor, var hann of neikvæður eða ???????? Í lokinn þá benti ég þeim systrum mínum á að kanski væri bara til húmor sem væri einfaldlega fyndinn og ætti ekki að skilgreina hann....... Þannig að við sættumst á að við hefðum bara fínan húmor og ef einhver hefði út á hann að setja yrði bara svo að vera. Ég skal bara segja ykkur það að þessi umræða var mjög húmorísk og mikið var hlegið á meðan.
Þarna skemmtu systur mínar sér líka yfir því að ég var svo stirð í öllum líkamanum og hreyfði mig mjög afkáralega. Já haldið ekki að Anna systir hafi verið að senda mig eftir fullt af dóti og svo kallaði hún á eftir mér : Sigga flýttu þér, flýttu þér. Þær systur sátu svo í krampakasti á meðan ég skakklappaðist framm og til baka. JÁ OG ÞETTA KALLA ÞÆR HÚMOR!!!!!!!!
Reyndar gleymdi ég að byrja á því að segja að síðasta föstudag fyrir sumarfrí ( s.s. vinnudag og ég að drífa mig austur strax á laugardeginum ) þá seldist íbúðin mín sem ég er búin að reyna að selja síðustu 7 mán. Já hún Sigga þurfti að koma þessu í gegn 1.2.og 3. og fara svo beint í 4 vikna frí og fyrstu 2 út úr bænum. Trúið mér ég var svo stressuð að ég nagaði á mér handarbökin við að koma þessu í gegn áður en ég færi. Jæja en þegar ég kom aftur þá varð ég nú aldeilis að fara að finna húsnæði fyrir familíuna. Við Lýður skoðuðum endalaust af húsnæði, einbýli, hæðir, íbúðir............... kræst ég er svo búin að fá mig fullsadda af að ráðast inn á ókunnugt fólk og kíkja í skápana. En viti menn, síðasta föstudag skrifuðum við undir lokatilboð um kaup á nýrri íbúð. Og nú erum við fjölskyldan að flytja í Hafnarfjörðin. Ég er svo glöð. Þetta verður alveg yndislegt. Reyndar flytjum við ekki alveg strax. En það kemur að því. Og þá allir mínir vinir og fjölskylda er ykkur boðið hér með í kaffi hvenar sem er.
Knús og kossar þangað til næst. KISSSSSSSSSSSSSSSSSSS

0 Comments:

Post a Comment

<< Home