Hey ég gleymdi að segja ykkur frá Gay pride helginni minni ( og allra hinna ) Ég byrjaði á því að fara heim til Tótu vinkonu og vekja hana af værum 2ja tíma blundi þar sem að hún hafði verið á næturvakt aðfaranótt laugardagsins. Ég koma með rúnstykki og hjónabandssælu til að hressa hana við. Þannig að dagurinn byrjaði á yndislegum morgunmat hjá okkur vinkonunum. Ég skil ekki í henni Tótu, ég get svarið það að þegar hún kom framm úr þá byrjaði hún strax að syngja ............... hvaða morgungleði er það ? Síðan skondruðumst við í bæinn og horfðum á gönguna ásamt fleiri þúsund manns. Hittum síðan Þórdísi systir og dóttur hennar hana Töru Sóley sem urðu samferða okkur niður á Lækjargötu. Þar skemmtum við okkur mjög vel. Fórum síðan heim til að taka okkur til fyrir partý-ið hjá Óla Geir og Rng. Þetta var alveg geðveikt partý. Við fengum æðislegan mat oooooooooooo ég borðaði svo mikið, svo var farið í hina ýmsu leiki og skemmt sér alveg konunglega. Endað í bænum ( Lýður fór heim ) fyrst á Thorvaldsen og síðan seint og um síðir á NASA. Ji ég dansaði svo mikið. Hún Gabí, vinkona Tótu, var svo yndisleg að ná í okkur á milli kl. 6 - 7 um morguninn.
|
4 Comments:
At 10:50 AM,
Anonymous said…
Hæ snúlla.... Æðislegt og til hamingju með þetta allt.... Velkomin í hóp fólks með hvíldarröskun :o)
kv Haddý Jóna
At 11:17 AM,
Dísa said…
mér finnst þú rosalega fyndin alltaf! Til lukku með nýju íbúðina og "greininguna".
kys og kram frá Áló.
Sakna þín ýkt mikið dúllurass - sjáumst í des.
Dísa & gengið!
At 7:39 AM,
adda said…
Takk fyrir síðast og til hamingju með nýju íbúðina :D Það er löngu tímabært að hafa hitting... hvað segir þú um það???
At 2:26 PM,
Anonymous said…
mér finnst þú mega vera duglegri að uppfæra síðuna þína Sigga mín.
kys og kram frá 'Aló
Post a Comment
<< Home