Sigga Sif

Wednesday, May 03, 2006

Hubbe hulle allir saman. Nú er komin þriðji maí og svolítill tími í næstu frídaga. Ég ætla að segja ykkur svona undan og ofan af því hvernig helgin leið. Sko Gunna systir kom í bæinn ( við gáfum henni málverk ) og á föstudagskvöldið þá sátum við, líka Þórdís loksins þegar hún fannst, heima og drukkum freyðivín og kjöftuðum. Endaði með því að allir skriðu í rúmið vel þreyttir. Daginn eftir þá var ég að dandalast heima og undirbúa kvöldmatinn sem systur mínar ætluðu að neita með okkur familien. Það var s.s. kjúlli og önd. Ég svolítið stressuð af því að ég hef aldrei eldað önd áður, en það tókst líka þetta fína vel. Gerði sætu chilli kartöflumúsina með og fína andasósu, ásamt fleiru. Þetta fór bara vel í ökkur. Síðan var ákveðið að drífa sig á djammið og reyndar að byrja á Karóke í Ölver. Þegar búið var að múta Telmu Þöll til að passa frænku sína, hana Töru Sóley, þá var ákveðið að drífa sig. Vaskað upp í snatri og síðan drifið í að finna föt handa Siggu ( mér ) og svo make upi skellt framan í sig. Auðvitað fór ég alls ekki í fötin sem þær systur völdu á mig. Ég ætlaði nú ekki að vera eitthvert jólatré. Þær sökuðu mig um að reyna að vera eins ljót og ólöguleg og ég gæti á meðan að verið væri að máta. Þær voru pínu sárar ( grín ) út í mig. En maður verður nú að hafna systrum sínum fyrir fegurðina, maður fer ekki út í hverju sem er, HA GIRLS !!!!!!! Já ég gleymdi og á meðan þessu öllu stóð var drukkið örlítið meira freyðivín. Virkilega gaman. Þórdís systir alveg gjörsamlega að gera okkur Gunnu brjálaðar af því að hún vildi fara að drífa sig af stað í Ölver. Sagði að það væri sko alltaf endalaus röð þar. Værum heppnar ef við fengum eitt lag á mann ef við kæmum eftir kl. 21.00. Já nebbbnilega. Það fór ekki þannig. Þegar við vorum búnar að horfa á endann á sætu bíómyndinni, dansmynd, í sjónvarpinu ( verð að viðurkenna að ég komst aldrei inn í þann þráð ) svona að verða kl. 23.00, þá var ákveðið að drífa sig af stað af því að Ölver væri sko alveg orðið stútfullt af söngvurum ( að Þórdísar sögn). Við mættar á slaginu 23.00 og demdum okkur í " röðina " Hey ekki búið að opna fyrir karóke, var svo léleg mæting. Jáhá, nebbbbnilega. En það var allt í lagi við fengum okkur bara bjór og kölluðum út fullt af vinkonum sem helltust yfir staðinn þannig að fastagestir vissu ekki hvað á sig stóð veðrið. Svo náttúrlega var opnað þar fyrir gæjurnar og við systur ásamt fleirum skelltum okkur á svið ( e.b. gólfið ) Sungum þar af hjartans list fram og til baka, skelltum köllunum á staðnum upp í valsa og polka , þær sem ekki voru að syngja, og skemmtum okkur all vel. Þegar líða fór að kl. varð 3 að nóttu þá drifum við okkur í bæinn af því að við ætluðum að dansa. Hey þá mættu þessar elskur ( kallarnir ) og sögðu að þeim fyndist það nú ekki fyndið að við kæmum þarna, gerðum allt vitlaust í gleði og færum svo bara þegar hæst stemmdi. En við buðum þeim bara með okkur í bæinn, sem þeir reyndar þáðu ekki. Nú restin fór svona svolítið í að fara á milli staða. Hitti Tótu vinkonu með allar sína Skota eða voru það Írar. Jæja allvega fullt af ljóskum. híhíhíh. Svo farið og fengið sér að borða sem er mjööööög nauðsynlegur endir á svona kvöldi. Svo kom þessi elska minn hann Lýður og sótti okkur systraskarann og kom okkur heim. Næsti dagur, sunnudagur, fór svolítið svona í gláp og leti, systurnar komu og borðuð afganga síðan kvöldinu áður og Gunna systir dottaði inn á milli. Á mánudeginum fórum við inn í sveit að hjálpa tengdó. Þar voru fyrir Oddur mágur og Guðrún ( er hún þá ekki svila ? ) OG ÞAU ERU AÐ FARA AÐ GIFTA SIG NÆSTA SUMAR OG ÞAU BÁÐU MIG UM AÐ SYNGJA Í BRÚÐKAUPINU, sem er mikill heiður fyrir mig. Við fórum út í fjárhús að marka og bólusetja. Guðrún mín sem segist vera mesta borgarbarn ever, stóð sig eins og hetja. Tók hana nokkrar sekúndur að venjast lyktinni og að það væri eðlilegt að hálft eyra væri klippt af veslings lömbunum. En eftir það eins og hún hefði aldrei gert neitt annað. Hún er algjör snillingur. Jæja nóg í dag.


7 Comments:

  • At 3:04 PM, Anonymous Trausti Mágur said…

    Eldaðiru öndina mína?????

     
  • At 2:26 PM, Anonymous Dísa í Dk said…

    wish I had been there
    *sniff* *sniff*

    kys og kram

     
  • At 5:06 AM, Anonymous Tóta said…

    Þetta voru allt Írar (kem ekki nálægt skotum) :)

     
  • At 3:18 AM, Blogger Guðrún Vald. said…

    Æ takk Sigga mín, þetta var fallega sagt :)

     
  • At 4:26 PM, Anonymous Tóta said…

    Sá commenti þitt hjá Dóu og held að þú hafir eitthvað miskilið hún er bara að fara norður í nokkra daga en verður í bænum í allt sumar :) svo það verður nógur tími fyrir brunch einhverja helgina :)

     
  • At 5:02 AM, Anonymous Telma said…

    þú mátt ýta á enter einstöku sinnum :P það er pain að lesa þetta svona í klessu :D

     
  • At 3:15 PM, Anonymous Trausti said…

    Hvað með þessa fugla okkar...??? Eigum við ekki að fara að elda? Ég er svangur.

    Á ekki að fara að koma mðe nýjan pistil eða hvað?

     

Post a Comment

<< Home