Góðan og blessaðan daginn allir mínir vinir og til hamingju Finnar með sigurinn í Eurovision. Matti minn engar svona þjóðarglósur þótt að þínir menn hafi unnið þetta. En samt innilega til hamingju. OG HVAÐ SEGIÐ ÞIÐ SVO UM HANA SILVÍU NÓTT ?? Ég sagði alltaf að við áttum að senda Regínu Ósk. Hún væri okkur til sóma og lagið flott. Ég komst að því í gærkveldið að ég hugsa alveg eins og Birgitta Haukdal ( HMMMMMM) Mér og Birgittu finnst að fólk, alveg sama hver er, eigi ekki að fara í heimsókn til annarra og lítillækka heimili þeirra. JÁ ÞAÐ FINNST OKKUR BIRGITTU. Það kann bara ekki góðri lukku að stýra. Það eru einmitt svona hlutir sem kalla á stríð á milli flokka. Blóðuga bardaga. Ekki gott. Ég vil samt taka það fram að mér finnst Ágústa Eva stórkostleg leikkona og ég fell gjörsamlega í stafi fyrir að halda þetta út allan tímann. Þanngi að Silvía eða Ágústa, ef þið eruð að lesa, þá eruð þið báðar stórkostlegar hvor á sinn mátann. Núna eru að byrja sumarfrí í vinnunni ( ekki ég samt strax ) þannig að ég verð örugglega ekki sú allra duglegasta að skrifa, en ætla samt að reyna eitthvað. Ég var í útskriftarveislu hjá Dóru frænku á síðasta laugardag. Það var alveg frábært. Hún Dóra mín er rúmlega fimmtug ( sem er samt enginn aldur, er ekki að segja það ) og er sko að nánast að byrja í framhaldsnámi núna eftir tugi ára. Ef þetta er ekki dugnaður þá veit ég ekki hvað dugnaður er. Ef ég hefði nú bara helminginn af hennar kjarki þá væri ég kjarkmikil manneskja. Og hún er sko bara rétt að byrja, var að útskrifast sem félagsliði og er að fara í sjúkraliðann í áframhaldandi nám. Trúið mér hún verður búin með sálfræðina, hjúkrun og félagsfræði áður en við hin getum snúið okkur við. Hún er ótrúleg. Og hún útskrifaðist ekki með lægri einkunn en 9 og samt í vetur var hún að gera upp eldhúsið sitt, frá toppi til táar, sem hún gerði að sjálfsögðu sjálf. Og þá erum við ekki að tala um " gerði það sjálf " sem þýðir hringdi í iðnaðarmennina, heldur " gerði það í alvörunni sjálf " jebbs allt saman. Jæja hætt í bili. knús og kossar |

3 Comments:
At 6:06 PM,
Tóta said…
:)
At 2:49 PM,
Trausti Mjóhanns said…
Finnst þetta samt snilld með Silvíu Nótt, þetta snobb lið hefur gott af því að láta aðeins drulla yfir sig og það er bara vitlaust að sjá ekki grínið í þessu! Það eina sem mér finnst lélegt í þessu hjá henni er að fara burt frá því að árita diskinn sinn og skilja fulla búð af börnum svekktum eftir.
Já Sylvía er flott og Ágústa líka, báðar mjög getnaðarlegar og ég er á lausu ef þær hafa áhuga stelpurnar.
At 11:04 AM,
Dísa & gengið said…
Er ekkert í gangi?
kys og kram frá 'Aló!
Post a Comment
<< Home