Sigga Sif

Friday, April 28, 2006

Hæhæ, allir sem einn. NÚ GET ÉG SAGT YKKUR LEYNDARMÁLIÐ. Gunna systir mín ( litla örverpið ) er nefnilega 30 ára í dag og við Elfa og Telma fórum að leita að afmælisgjöf. Auðvitað var ekki hægt að setja það inn strax. Hún Gunna mín gæti lesið bloggið mitt. En núna er það allt í lagi þar sem að ég veit að það er brjálað að gera hjá henni í dag og svo ætlar hún líka að koma til Reykjavíkur í dag eða á morgun. Verður gamaaaaaaaaaaaaannnnnnnnn ? Gæti verið.
Mér finnst líka æðislegt hvað ég fékk skemmtileg comment á skot löngun mína. HÍHÍHÍHÍHÍHÍ. Fyrir 2ur jólum síðan ætlaði Lýður að gefa mér byssu í jólagjöf en hætti við það, hann sagðist ekki treysta því að ég notaði hana ekki á hann einhverntímann. Hahahahahahaha. Eru fleiri hræddir ? Hey ég þetta gæðablóð. :-( Alex þótt ég verði byrjuð þá getum við samt farið saman í september. Daðey mín, mikið rosalega var gaman að fá commentið frá þér. Ég roðnaði af hamingju. Þið hinir sem ekki skilja það : ástæðan einfaldlega það að ég hef aldrei heimsótt þau á nýja heimilið þegar Daðey hefur verið heima. Og skammastu þín svo bara Sigríður. En núna loksins er komið sumar. Mér skilst af fróðari mönnum að það sé núna 12°c úti og það er nú ekki slæmt á íslenskan mælikvarða. Allavega nóg til að leysa upp snjóinn. Ég var að tala við Möggu mína Ein. áðan og hún komst að því að það þyrfti að senda björgunarlið á mig til að ná mér út af heimilinu. Reyndar þá sagði ég henni að það hentaði mér fínt eins og staðan er að það kæmi einhver og BÆRI mig út af heimilinu. hahaha. jÁ en nú er komið sumar og ég að hugsa um að fara í sund. Kanski bara alla helgina. NEI alveg rétt, Gunna er að koma í bæinn. Þá bara seinna. Já jæja nú er ég einmitt hætt að segja eitthvað að viti og ætla því að stoppa hér. Sumarknús til allra.

3 Comments:

  • At 8:40 AM, Anonymous Telma said…

    Gosh mamma :P Þetta er eins og að lesa bloggið hjá jafnöldrum mínum.... Act your age!

     
  • At 6:00 AM, Anonymous Dísa said…

    Góð Telma! ;)
    Og hver var svo afmælisgjöfin til Gunnu?
    Geturðu komið með það í næsta bloggi?
    Dæs

     
  • At 10:00 AM, Anonymous Alex said…

    Ég skoraði nokkra kærustupunkta þegar ég gaf Eisa mínum haglabyssu í afmælisgjöf fyrir 2 árum síðan og hann hefur alla veganna ekki enn reynt að skjóta mig né kettina, og ég og kettirnir höfum enn ekki reynt að skjóta hann :)

     

Post a Comment

<< Home